Á 257. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar var tekin til afgreiðslu við seinni umræðu uppfærð fjallskilasamþykkt Dalabyggðar. Samþykktin hefur nú verið send til B-deildar Stjórnartíðinda og þegar hún hefur fengið þar afgreiðslu þá tekur samþykktin gildi.
Sveitarstjórn og byggðarráð hafa fjallað um verkefnið síðan snemma í vor, fundað var með fulltrúum allra fjallskilanefnda og umsagnir bárust frá tveimur þeirra þannig að leitast hefur verið við að kalla eftir sjónarmiðum þeirra sem hlut eiga að máli. Einnig var nágranna sveitarfélögum gerð grein fyrir þeirri vinnu sem var í gangi og kallað eftir viðbrögðum. Er hér með komi á framfæri þökkum fyrir það samráð og samvinnu sem hlutaðeigandi hafa lagt fram við þessa vinnu.
Að höfðu þessu samráði og samvinnu var fjallskilasamþykktin samþykkt samhljóða í sveitarstjórn Dalabyggðar eins og fyrr segir á 257. fundi sem haldinn var þann 10. júní sl. þannig að ný fjallskilasamþykkt tekur gildi á næstu vikum eða eins og fyrr sagði þegar B-deild Stjórnartíðinda hefur birt tilkynningu þess efnis.
Samþykktina má kynna sér hér: Fjallskilasamþykkt Dalabyggðar, samþykkt 10. júní 2025 (bíður birtingar í B-deild)