17. júní í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Dalabyggð þakkar íbúum og öðrum gestum fyrir komuna sem og öllum sem lögðu hönd á plóg við að gera daginn ánægjulegan í gær.

Berghildur Pálmadóttir flutti hátíðarræðuna í ár þar sem hún fjallaði meðal annars um sjálfstæðið, frið, fjölbreytileika, söguna og auðinn í samfélaginu:
„Hér vitum við hver við erum, og þekkjum hvert annað. Við rekumst á hvert annað í búðinni, í sundlauginni, í vinnunni. Við mætum hvert öðru með virðingu og hjálpsemi. Við lyftum hvert öðru upp, og það er það sem gerir okkur rík – tengslin, nálægðin og samheldnin.“
Ræðu Berghildar má lesa í heild sinni hér: Hátíðarræða á 17. júní 2025

Dagný Sara Viðarsdóttir nýstúdent var Fjallkona Dalabyggðar 2025 og flutti Dalvísu eftir Jónas Hallgrímsson með glæsibrag.

Alexandra Agla Jónsdóttir og Þórarinn Páll Þórarinsson fluttu nokkur falleg íslensk lög og svo var tilkynnt um Dalamann ársins 2025.

Í ár hlutu titilinn hjónin Ingibjörg Þóranna Steinudóttir og Einar Hlöðver Erlingsson m.a. fyrir uppbyggingu í heimahéraði sem styrkir bæði forsendur sauðfjárræktar og nýsköpunar í Dölum. Dugnaður, hugrekki, eldmóður, kraftur og útsjónarsemi var meðal annars nefnt í tilnefningum. Við óskum þeim enn og aftur til hamingju með titilinn.

Eftir dagskrá í Dalabúð brugðu gestir sér út þar sem Dalahestar teymdu undir börnum, Skátafélagið Stígandi var með leiki og Dalabyggð bauð upp á grillaðar pylsur á meðan Fjallkonan heimsótti íbúa á Silfurtúni.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei