KM þjónustan í Búðardal vill koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri vegna skilagjaldsskyldra drykkjarumbúða (flöskur, dósir):
Kæru viðskiptavinir.
Þar sem allir gámar eru orðnir sléttfullir af endurvinnslu og þeir verða ekki tæmdir fyrr en í næstu viku þá þurfum við að loka á móttöku á endurvinnslu fram á miðja næstu viku.
Einnig, vegna orlofs þá verður endurvinnslan fyrir skilagjaldskyldar umbúðir Í Búðardal lokuð í júlí og ágúst mánuði.
Þökkum skilningin og afsökum óþægindin sem þetta kann að valda
Kv. Starfsmenn K.M. þjónustunnar