Farnetssamband – breytingar eftir lokun 2G og 3G

Kristján IngiFréttir

Fjarskiptafyrirtækin hafa unnið að útfösun eldri farsímakerfa (2G og 3G) í áföngum. Vinnan hófst vorið 2025 og lokuðu þá Vodafone og Nova sínum kerfum. Síminn lokaði 2G kerfinu í janúar s.l. og stefna að lokun 3G á Vesturlandi í mars. Lokun 2G og 3G kerfa íslensku fjarskiptafélaganna er hluti af alþjóðlegri þróun. Kerfin eru komin til ára sinna og standast illa kröfur framtíðar um hraða og öryggi, en rýma þarf til á tíðnisviðum fyrir nýrri tækni eins og 4G og 5G.

Við þessa breytingu er mikilvægt að notendur hugi að stillingum símtækja og kanni hvort að eldri tæki styðji við nýrri kerfin sem eftir standa. Nálgast má upplýsingar um útfösunina á heimasíðum fjarskiptafélagana og hjá Fjarskiptastofu, sjá hér: 2G og 3G útfösun

Hér koma nokkrar einfaldar ábendingar sem íbúar er hvattir til að kynna sér:

  • Mikilvægt er að notendur sem upplifa þjónustuskerðingu byrji á því að athuga hvort símtækin eru með þessa “VoLTE” stillingu virka í símum sínum. Annars fara símtöl ekki um 4G kerfið (aðeins netnotkun). LTE (Long Term Evalution) er heitið á 4G (sama og GSM er heitið á 2G). Í upphafi 4G var það kerfi aðeins hugsað fyrir netnotkun og talsamband yfir 4G kom síðar.
  • Notendum sem upplifa þjónustuskerðinu þrátt fyrir að hafa yfirfarið áðurnefndar stillingar í símum sínum er bent á að senda ábendingar inn á vef Fjarskiptastofu þar er form á forsíðunni sem einfalt er að koma ábendingum til skila. Fjarskiptastofa hefur eftirlit með þessum útfösunum eldri kerfa og innleiðingu nýrra í þeirra stað. Fjarskiptastofa heldur því utan um þessar ábendinga, yfirfer og kemur þeim áfram til viðkomandi fjarskiptafélaga til úrlausna.
  • Eins eru notendur kvattir til að nýta sér þá viðbót í nýrri kerfunum 4G og 5G að stilla einnig í símum sínum á “VoWiFi” ef innanhússamband er ekki gott frá 4G/5G. Þá nýta símarnir WiFi merkin frá netbeinum sem geta verið með betri innanhúsdekkningu og þannig má í mörgum tilfellum stórbæta samband á farsímum innanhúss.

Íbúar eru hvattir til að nýta sér tilkynningarform Fjarskiptastofu en sendi einnig ábendingar um svæði þar sem símasamband hefur versnað á kristjan@dalir.is.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei