Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 mun almyrkvi á sólu ganga yfir vesturhluta Íslands og sjást frá öllum sveitarfélögum á Vesturlandi. Gera má ráð fyrir mikilli aðsókn gesta á svæðið til að upplifa þennan sjaldséða atburð og því mikilvægt að allir sem málið varðar taki þátt í undirbúningi og samráði.
Markaðsstofa Vesturlands – áfangastaðastofa heldur utan um samráðsvettvang Vesturlands vegna almyrkva, þar sem hagaðilar vinna saman að því að skapa yfirsýn yfir aðstöðu og mögulegar aðgerðir á svæðinu. Markmiðið er að stuðla að góðum undirbúningi fyrir atburðinn, auk þess að miðla upplýsingum og kynna þá aðstöðu og upplifunarmöguleika á Vesturlandi sem gestir sem koma til að sjá almyrkvann geta nýtt sér. Hvetjum alla hlutaðeigandi til að taka þátt í þessu með okkur:
Nánari upplýsingar Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026 – samráð við ferðaþjónustu og landeigendur á Vesturlandi | Upplifðu Vesturland
