Örnefni og fuglar á Breiðafirði

SafnamálFréttir

Kynningarfundur um örnefni og fuglalíf á eyjum og skerjum í Breiðafirði verður haldinn fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 14 í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Náttúrufræðistofnun og Breiðafjarðarnefnd standa fyrir fundinum. Fundinum verður jafnframt streymt.

Á fundinum verða flutt erindi um örnefni á eyjum Breiðafjarðar og lífríki þeirra, kortlagningu staðkunnugra og fuglalíf á svæðinu, auk þess sem fjallað verður um Örnefnasafn Árnastofnunar og verndun Breiðafjarðar. Dagskrá og nánari upplýsingar eru á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og aðgangur ókeypis.

Tengill á streymi

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei