Þriðjudaginn 31. mars komu fulltrúar Slysavarnadeildar Dalasýslu færandi hendi í íþróttamiðstöðina í Búðardal og afhentu Dalabyggð, 86 armkúta í ýmsum stærðum ásamt myndarlegum fjárstyrk til kaupa á slysavarna- og öryggisbúnaði fyrir miðstöðina.
Uppbygging íþróttamiðstöðvarinnar hefur hlotið ómetanlegan stuðning frá samfélaginu í Dölum, eins og hér kemur glöggt fram, og er þessi gjöf dæmi um þann samhug og vilja samfélagsins til að leggja sitt af mörkum.
Hafið kæra þökk félagar Slysavarnadeildar Dalasýslu!
Á meðfylgjandi mynd má sjá Sólrúnu Ýr Guðbjartsdóttur og Söru Kristinsdóttur ásamt Ísaki Sigfússyni lýðheilsufulltrúa sem veitti gjöfinni viðtöku, við nýju sundlaugina, sem er nú að mestu tilbúin.
