Heyrúlluplast sem safnað er í sveitarfélaginu er verðmæt afurð sem fer í endurvinnslufarveg. Til að tryggja hreinleika plastsins og vegna breytinga á tækjum við söfnun þurfa sumir bændur að gera breytingar á frágangi plastsins.
Eftir næstu rúlluplast söfnun, sem er vikuna 13. – 17. apríl, verða breytingar á söfnuninni:
- Gámar verða ekki losaðir.
- Allt plast verður að vera baggað – engir pokar leyfði af neinni tegund.
- Litaflokkað í 3 flokka. Hvítt baggað sér, svart baggað sér, grænt baggað sér. Bleikt, blátt, gult má fara með grænu.
Gámafélagið getur aðstoðað þá sem eiga gáma að fá fiskikör til að bagga plastið í. Aðrir geta óskað eftir kari, en beiðnir verða afgreiddar fyrst til þeirra sem eru með gáma.
Minnum á hreinleika:
- Hrista allt laust hey úr plastinu.
- Ekkert net eða rusl með plastinu.
- Ekkert annað plast af neinni tegund með plastinu.
Nýjustu leiðbeiningar um frágang á heyrúlluplasti, áburðarsekkja o.fl. má alltaf nálgast á heimasíðunni sveitarfélagsins hér: Heyrúlluplast
Dreifibréfi á vegum Gámafélagsins var í gær sett í póstkassa á bæjum þar sem rúlluplast hefur verið sótt. Hvetjum bændur til að senda inn uppfærðar tengiliðaupplýsingar til að auka skilvirkni samskipta og tilkynninga vegna söfnuninnar.
Spurningar og beiðnir um kar má senda á borgarplan@igf.is
