Enginn framboðslisti var lagður fyrir kjörstjórn Dalabyggðar innan lögbundins frests og verða því óbundnar kosningar (persónukjör) í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí 2026.
Allir kjósendur sveitarfélagins eru í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrirfram skorast undan því.
Þeir sem hafa að skorast undan kjöri samkvæmt 49. gr. kosningalaga nr. 112/2021 eru
Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Ásgarði
Halla Sigríður Steinólfsdóttir, Ytri-Fagradal
Skúli Hreinn Guðbjörnsson, Miðskógi
Þuríður Jóney Sigurðardóttir, Sunnubraut 3b
Kjörfundur verður laugardaginn 16. maí kl. 10:00 – 19:00 í Dalabúð og verður nánar auglýstur síðar.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 17. apríl 2026 hjá sýslumönnum og í sumum sveitarfélögum.
Á kjörskrá eru 534, karlar 281 og konur 253.
Upplýsingar um flest er lýtur að kosningum er að finna á kosningavef landskjörstjórnar, www.kosning.is.
Yfirkjörstjórn Dalabyggðar
