Kjörskrá Dalabyggðar vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá mánudeginum 13. apríl til föstudagsins 15. maí.
Miðað er við skráningu lögheimilis og ríkisfangs í þjóðskrá 32 dögum fyrir kjördag, sem var 8. apríl síðastliðinn.
Á kjörskrá eru 534 kjósendur, 281 karl (52,6%) og 253 konur (47,4%).
Þá geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á heimasíðu Þjóðskrár. Kosið verður í Dalabúð.
Ítarlegri upplýsingar um sveitarstjórnarkosningar er að finna á heimasíðu Landskjörstjórnar.
Yfirkjörstjórn Dalabyggðar
