Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri og Viðar Þór Ólafsson verkstjóri áhaldahússins í Dalabyggð hittu í gær flottan hóp nemenda í 1. til 3. bekk Auðarskóla, ásamt starfsmönnum skólans.
Sl. haust hafði þessi sami hópur sent sveitarfélaginu erindi þess efnis að það vantaði gangbraut á Miðbrautina þannig að þau gætu m.a. gengið styttri og öruggari leið frá skólanum og yfir á bókasafnið.
Á þessum fallega degi var skiltið sett upp að þeim viðstöddum og á næstunni verður máluð gangbraut á götuna.
Það er gaman og gott þegar unga fólkið í Dalabyggð lætur sig málin varða.

