Gott að eldast

DalabyggðFréttir

Opinn fundur um verkefnið Gott að eldast verður haldinn í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar mánudaginn 27. apríl kl. 13:00.

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boða til opins fundar í verkefninu Gott að eldast. Á fundinum verða kynntar niðurstöður nýrrar könnunar um virkni, þátttöku og líðan íbúa eldri en 80 ára í Dalabyggð. Niðurstöður varpa ljósi á stöðu og upplifun hópsins og skapa mikilvægan grunn fyrir áframhaldandi þróun þjónustu.

Einnig verður farið yfir stöðu samþættrar þjónustu við eldra fólk og rætt hvernig ólíkir þjónustuþættir vinna saman að því að styðja við sjálfstætt og innihaldsríkt líf.

Sérstök áhersla verður lögð á hlutverk iðjuþjálfa og framlag þeirra til aukinnar virkni, vellíðanar og lífsgæða.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og er kjörið tækifæri til að fræðast, ræða málin og taka þátt í samtali um það hvernig við getum best stutt við gott líf á efri árum.

Boðið verður upp á kaffiveitingar og eru íbúar Dalabyggðar hvattir til að líta við í Nýsköpunarsetrið og taka þátt.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei