Dalabyggð og Björgunarsveitin Ósk í Búðardal hafa undirritað viljayfirlýsingu um mögulega framtíðarnýtingu húsnæðis Björgunarsveitarinnar við Vesturbraut 12 í Búðardal. Með yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja sínum til að efla samstarf viðbragðsaðila í sveitarfélaginu og bæta aðstöðu fyrir mikilvæga neyðar- og öryggisþjónustu í Dalabyggð.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni verður unnið að því að Dalabyggð taki hluta húsnæðisins á leigu undir starfsemi slökkviliðs sveitarfélagsins, þar sem komið yrði fyrir aðstöðu fyrir tæki, búnað og starfsemi slökkviliðsins. Samhliða verður horft til frekari þróunar á húsnæðinu og nærliggjandi svæðis með það að markmiði að skapa öfluga sameiginlega aðstöðu fyrir viðbragðsaðila í sveitarfélaginu.
Meðal þess sem horft verður til eru sameiginleg fundar- og fræðslurými, búnings- og hvíldaraðstaða, lager- og búnaðarrými auk æfinga- og kennsluaðstöðu. Þá er einnig gert ráð fyrir að fleiri viðbragðsaðilar geti komið að verkefninu síðar meir eftir því sem tilefni gefst til. Er þá m.a. horft til aðstöðu fyrir lögreglustöð sem sárvantar á svæðinu en til þessa hefur dómsmálaráðuneytið ekki brugðist við með neinum hætti óskum Dalabyggðar um samstarf í þá veru.
Aðilar viljayfirlýsingarinnar leggja áherslu á mikilvægi samnýtingar innviða, aukins samstarfs og hagkvæmni í rekstri með öryggi íbúa Dalabyggðar og annarra sem leið eiga um Dali að leiðarljósi. Viljayfirlýsingin markar því vonandi spennandi fyrsta skref í átt að enn öflugri viðbragðsþjónustu í Dalabyggð.
Á mynd hér með má sjá fulltrúa Björgunarsveitarinnar með fulltrúum Dalabyggðar og slökkviliðsins, frá vinstri Sindri Geir, Helgi Fannar, Guðmundur formaður Björgunarsveitarinnar, Bjarki sveitarstjóri og Skjöldur Orri slökkviliðsstjóri.
