Sumarlokun skrifstofu Dalabyggðar 2026

DalabyggðFréttir

Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Dalabyggðar lokuð frá og með 20. júlí til og með 4. ágúst nk. Skrifstofan opnar aftur eftir sumarleyfi miðvikudaginn 5. ágúst kl. 09:00.

Við bendum á að hægt er að senda tölvupóst á netfangið dalir@dalir.is meðan á sumarlokun stendur og við svörum við fyrsta tækifæri.

Við biðjum íbúa að athuga að heimaþjónustusíminn verður einnig lokaður á þessum tíma. Erindum vegna þessa skal því vísa á dalir@dalir.is

Röskun getur orðið á útgáfu einhverra reikninga vegna gjalda á vegum sveitarfélagsins á þessum tíma þ.e. reikningar gætu borist aðeins seinna en vant er. Eindagi gjalda/reikninga mun samt sem áður alltaf vera 30 dagar.

Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er því föstudagurinn 17. júlí, þá er hefðbundin opnun skrifstofu og símatíma eða frá kl.09:00 til 12:00.

Við þökkum skilninginn og óskum ykkur ánægjulegs sumars!

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei