Sumaropnun í íþróttamiðstöðinni

DalabyggðFréttir

Frá og með 1. júní tekur gildi sumaropnun í íþróttamiðstöðinni sem gildir til og með 31. ágúst. Með nýjum opnunartíma er leitast við að koma til móts við óskir íbúa um aukið aðgengi um helgar.

Sumaropnunartími er eftirfarandi:

Mánudaga–föstudaga: kl. 07:00–21:00
Laugardaga og sunnudaga: kl. 10:00–18:00

Opnunartíminn á við bæði sali og sundlaug.

Viðtökur við íþróttamiðstöðinni hafa verið afar góðar og markmið breytinganna er að efla þjónustu og bæta aðgengi enn frekar yfir sumartímann, í takt við aukna notkun og umferð á svæðinu.

Verið hjartanlega velkomin í íþróttamiðstöðina í sumar – hlökkum til að sjá ykkur!

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei