Ársskýrsla um verkefnið Brothættar byggðir fyrir árið 2025 hefur verið gefin út, sjá hér. Í skýrslunni er gerð grein fyrir því helsta sem hefur verið unnið að á árinu í þátttökubyggðarlögunum. Skýrslan byggir að miklu leyti á ársskýrslum verkefnisstjóra í einstökum byggðarlögum, auk samantektarefnis frá fulltrúum Brothættra byggða hjá Byggðastofnun en eins og kunnugt er þá er Dalabyggð í lokaáfanga þessa góða verkefnis.
