Börn í Auðarskóla fá sólmyrkvagleraugu

DalabyggðFréttir

Sveitarfélagið Dalabyggð hefur nú afhent Auðarskóla sérstök sólmyrkvagleraugu í tilefni af almyrkvanum sem verður sjáanlegur um vestanvert landið miðvikudaginn 12. ágúst nk.

Markmiðið er að tryggja að öll börn í sveitarfélaginu geti fylgst með þessum einstaka náttúruviðburði á öruggan og skemmtilegan hátt. Skólinn dreifir gleraugunum til barna á næstu dögum.

Einfaldasta og ódýrasta leiðin til að fylgjast með sólmyrkvum er að nota örugg sólmyrkvagleraugu, líkt og þau sem dreift verður til nemenda í Auðarskóla. Sólmyrkvagleraugu deyfa sólarljósið um tíu þúsund falt og sía burt skaðlega útfjólubláa geislun og innrauða. Það gerir þau fullkomlega örugg til að fylgjast með sólmyrkvum. Venjuleg sólgleraugu eru EKKI örugg.

Sólmyrkvagleraugu þarf aðeins að nota á meðan deildarmyrkvanum stendur, fyrir og eftir almyrkvann. Engin hætta er á augnskaða þegar horft er á almyrkvann sjálfan með berum augum. Raunar er það eina leiðin til þess að upplifa almyrkvann og sjá kórónu sólar í öllu sínu glæsilega veldi. Mundu því að taka af þér sólmyrkvagleraugun innan við fimm sekúndum áður en almyrkvinn skellur á.

Þegar almyrkvanum lýkur og fyrstu sólargeislarnir birtast á ný verður sólin óþægilega björt áhorfs með berum augum. Þá er tími til að setja gleraugun aftur upp og gjóa augunum annað slagið að deildarmyrkvnum sem eftir er.

Deildarmyrkvi = Sólmyrkvagleraugu og sólarsíur á.
Almyrkvi = Horfa með berum augum og sólarsíur af.
Svo einfalt er það.

Almyrkvi á sólu sést afar sjaldan frá Íslandi en 12. ágúst 2026 mun almyrkvi ganga yfir hluta landsins, þar á meðal Vesturland. Þetta verður í fyrsta sinn síðan árið 1954 sem almyrkvi sést frá Íslandi, er næsti almyrkvi er 26. júni 2196.
Hérna má sjá hvaðan almyrkvinn sést: Hvaðan sést almyrkvi?

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei