Óskað eftir aðilum í nefndarstörf

DalabyggðFréttir

Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggðar óskar eftir því að einstaklingar sem hafa áhuga á að starfa í nefndum Dalabyggðar 2026-2030 gefi kost á sér með því að senda tölvupóst á dalir@dalir.is eða hafa samband við skrifstofu Dalabyggðar í síma 430-4700.

Þeir sem hafa áhuga á nefndarstörfum þurfa að gefa sig fram fyrir 3. júní nk. með því að senda póst og/eða hafa samband.

Nefndirnar sem um ræðir eru nefndir skv. A-hluta 48. gr. samþykkta um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar:

  1. Kjörstjórn við sveitarstjórnar- og alþingiskosningar
    3 aðalmenn og 3 varamenn.
  2. Umhverfis- og skipulagsnefnd
    5 aðalmenn og 5 varamenn.
  3. Félagsmálanefnd
    3 aðalmenn og 3 varamenn. Nefndin tilnefnir úr sínum röðum einn aðal- og einn varamann í barnaverndarnefnd Borgarfjarðar og Dala.
  4. Fræðslunefnd
    5 aðalmenn og 5 varamenn.
  5. Menningarmálanefnd
    3 aðalmenn og 3 varamenn.
  6. Atvinnumálanefnd
    5 aðalmenn og 5 varamenn.
  7. Fjallskilanefndir
    3 fulltrúar í hverja nefnd og 1 til vara, að frátalinni fjallskilanefnd Suðurdala þar sem eru 5 fulltrúar og 2 til vara.
    Nefndirnar eru: Fjallskilanefnd Skógarstrandar, fjallskilanefnd Suðurdala, fjallskilanefnd Laxárdals, fjallskilanefnd Hvammssveitar, fjallskilanefnd Fellsstrandar, fjallskilanefnd Skarðsstrandar og fjallskilanefnd Saurbæjar.

 

Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggðar

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei