Báta og pramma rallý verður haldið við bryggjuna á Bæjarhátíðinni í næstu viku. Bátunum verður ýtt úr vör frá rampinum og siglt sem leið liggur yfir að flotbryggjunni.
Guðmundur Guðbjörnsson eða Gummi er formaður Björgunarsveitarinnar Óskar og segir hann mikið tilhlökkunarefni að sjá bátana sem börn og fullorðnir hafa keppst við að smíða og/eða skreyta.
,,Síðast þegar við héldum bátarallýið þá komu bátarnir/prammarnir bæði skemmtilega skreyttir og breyttir. Það var ekki auðvelt fyrir dómnefndina að velja sigurvegara. Ég reikna með að það verði raunin í ár enda erum við Dalamenn einstaklega skapandi og skemmtilegt fólk”
Björgunarsveitin Ósk mun vera með öryggisgæslu meðan á rallýinu stendur og hvetur hann alla til að muna eftir björgunarvestum enda geri óhöppin ekki boð á undan sér. ,,Við í Ósk verðum með gæslu og sjáum um að allt fari vel fram en stærsta tilhlökkunarefnið er að sjá gleðina í augum keppendanna þegar þeir sigla heilu og höldnu yfir. Í því eru allir sigurvegarar” segir Gummi að lokum og hvetur alla sem vettlingi geta valdið að taka þátt og skemmta sér bæði í undirbúningi sem og siglingunni.
Báta/pramma rallýið verður haldið laugardaginn 4. júlí kl. 15 við rampinn, mæting þátttakenda er kl. 14:45.

Guðmundur Guðbjörnsson eða Gummi, er formaður Björgunarsveitarinnar Óskar
