Tilkynning frá Dalabyggð vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026

DalabyggðFréttir

Bréf þessa efnis hefur verið sent á öll heimili í Dalabyggð (póstnr. 370 og 371).

Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Vesturland 12. ágúst 2026. Um er að ræða sjaldgæfan náttúruatburð sem vekur mikla athygli bæði innanlands og erlendis. Í Dalabyggð mun þessi atburður sjást vel frá Skógarströnd, Fellsströnd og Skarðsströnd. Myndin hér fyrir ofan sýnir hvar almyrkvi á sólu mun sjást innan Dalabyggðar.

Atburðir sem þessir draga jafnan marga að s.s. fræðimenn og áhugafólk. Því má gera ráð fyrir aukinni aðsókn gesta á svæðið. Í rauninni má segja að við þurfum að búa okkur undir fjölda gesta sem við höfum ekki séð áður. Nú þegar er Vesturland „uppselt“ í kringum þennan atburð.

Vegna þessa vill sveitarfélagið koma hér á framfæri upplýsingum til íbúa, landeigenda og rekstraraðila í Dalabyggð.

Sveitarfélagið tekur þátt í samráðsvettvangi Vesturlands vegna almyrkvans og mun leggja megin áherslu á öryggismál í samstarfi við viðbragðsaðila og Vegagerðina. Þjónusta við gesti s.s. gisting, veitingar, salerni o.s.frv. verða á forráði þeirra sem vilja bjóða upp á hana og ber að fara eftir reglum þar um (sjá m.a. hér fyrir neðan).

Mögulegur undirbúningur

Bændur og landeigendur, sérstaklega á þeim slóðum sem atburðurinn sést vel, gætu þurft að gera eftirfarandi ráðstafanir:

  • Merkja slóða og einkavegi þar sem umferð óviðkomandi verður bönnuð.
  • Loka hliðum inn á tún og merkja að ekki megi opna/fara þar í gegn.
  • Færa búfénað sem haldinn er í girðingum nærri vegi sem ekki má nálgast eða merkja girðingar um að ekki megi nálgast dýrin og/eða gefa þeim.

Staðfest hefur verið tímabundin undanþága frá Vegagerðinni um að landeigendur megi loka héraðsvegum eða merkja þá sem einkavegi, á tímabilinu 10.-14. ágúst nk. Athugið að Vegagerðin mun hvorki koma að uppsetningu né að fjarlægja slíkar merkinga og ber öllum að fjarlægja þær eigi síðar en 14. ágúst ella er heimilt að hætta þjónustu við veginn og fjarlægja hann af vegaskrá.

Dalabyggð mun reyna að koma nauðsynlegum upplýsingum á framfæri við ferðamenn á þessu tímabili. Ef landeigendur vilja taka fram lokun ákveðinna svæða er hægt að senda þær upplýsingar á johanna@dalir.is

Umferðarstýring

Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður gripið til tímabundinnar umferðarstýringar á nokkrum vegum Vegagerðarinnar. Staðfest hefur verið að umferðarstýring (einstefna) verður um Klofningsveg (590) þann 12. ágúst, frá kl.08:00 og fram yfir atburð, eins og þörf krefur.

Ekið verður Hvammsveit → Fellsströnd → Skarðsströnd → Saurbær.

Megintilgangur þessara ráðstafana er að tryggja greiða leið viðbragðsaðila ef neyðartilvik koma upp. Lögregla fer með umferðastjórnun og ber að beina erindum vegna þessa til Lögreglunnar á Vesturlandi. Þannig biðlum við til t.d. bænda og annarra sem þurfa að vera á ferðinni s.s. vegna heyskapar þennan dag, að láta vita ef þörf er á ferð um svæðið.

Eru fyrirtæki og flutningsaðila hvattir til að fresta flutningum ef unnt er, skipuleggja akstur utan álagstíma og takmarka ferðir um mestu álagssvæðin þann 12. ágúst.

Leyfileg aðstaða og þjónusta

Viljum við einnig vekja athygli á að leyfilegt er að gera aðstöðu fyrir bílastæði með gjaldtöku í eigin landi án þess að sækja þurfi um sérstök leyfi vegna þessa. Hægt er að fá útgefið tímabundið leyfi fyrir rekstur tjaldsvæðis hjá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands.

Almenningssalerni eru jafnan starfsleyfisskyld en þar sem um mjög stuttan tíma er að ræða (ca. 10.-14. ágúst sem aðstaða er mögulega uppi) verða ekki gefin út starfsleyfi fyrir alla aðstöðu sem sett verður upp.

Setja má upp salernisaðstöðu og selja inn en ber þá að hafa eftirfarandi í huga:

  • Aðal málið er að kamra/vatnssalerni má setja niður svo fremi sem að frárennslið frá þeim fari í rotþró eða færanlega tank sem síðan er losað á viðeigandi urðunarstað, þ.e að ekki má leiða frárennslið frá kömrum og vatnssalernum beint út í skurð eða umhverfið. Aðstaða til handþvotta, handþurrkur þarf að vera á staðnum og sótthreinsilögur.
  • Ef settir verða upp kamrar/snyrtingar með vatni og mögulega yfirborðsvatn tekið úr nærliggjandi læk eða á, þá þarf að vara við því að drekka vatnið. En ef vatnið er tekið úr vatnsveitu á staðnum (bújörð) sem þjónar heimilinu þá ætti neysluvatnið væntanlega að vera í lagi.
  • Ef að einhverjir vilja selja inn á snyrtingar í heimahúsum eða útihúsum verður það leyfilegt á þessu tímabili en þá skiptir miklu máli að það séu einnota handþurrkur við handlaugar – ekki handklæði sem margar alls konar hendur fara í. Það er í lagi að vera með lítil handklæði sem eru þá bara í boði fyrir einn viðskiptavin og fer svo í þvott.

Ef það eru landeigendur sem kunna að hafa aðstöðu eða áhuga á að taka á móti gestum í tengslum við almyrkvann, til dæmis með bílastæðum, tjaldsvæði, aðstöðu fyrir hópa eða aðra þjónustu eru þeir hvattir til að skrá sig hjá Markaðsstofu Vesturlands sem mun halda utan um slíkar upplýsingar. Athugið að skráning hjá Markaðsstofunni er ekki bindandi, heldur aðeins til að skrá áhuga á að ræða möguleika á nýtingu á aðstöðu eða landi. Gott er að láta fylgja með upplýsingar um aðgengi, fjölda bílastæða og salerna á þeim stöðum sem skráðir eru.

Öryggi okkar og annarra

Vegna þeirrar aðsóknar sem búist er við ásamt álagi á samgöngur og viðbragðsaðila viljum við hvetja heimamenn til að gera ráð fyrir lengri ferðatíma og mögulegum töfum, sérstaklega ef ætlunin er að fara á stað til að upplifa almyrkva. Aka skal af sérstakri varúð, sérstaklega þar sem fólk getur verið óvant íslenskum aðstæðum og forðast að leggja ökutækjum í vegkanti eða þannig að þau hindri neyðarleiðir, innkeyrslur eða umferð.

Vegna fjölda ferðamanna geta þyngsli á fjarskiptakerfið orðið það mikil að farnetssamband verður lélegt/slitrótt. Hafið það sérstaklega í huga varðandi ferðalög ykkar og aðstæður. Gætið sérstaklega að börnum og eldri borgurum. Klæðist eftir veðri og gerið ráð fyrir köldu veðri, því að það kólnar á meðan á almyrkvanum stendur. Gott getur verið fyrir íbúa að gera ráð fyrir að eiga næg matvæli kringum atburðinn þar sem gengið getur á birgðir verslana. Þá bendum við fólki á að fara varlega ef aðstæður bjóða hættunni á gróðureldum heim. Þetta á þá við um grill, prímusa, sígarettur, varðelda og jafnvel aðra hitagjafa s.s. ökutæki.

Það er hættulegt að horfa beint í sólina án viðurkenndra sólmyrkvagleraugna eða sérstaks búnaðar. Notið eingöngu viðurkennd sólmyrkvagleraugu, venjuleg sólgleraugu duga ekki. Fylgist vel með börnum og tryggið að þau noti réttan búnað. Öll börn í Auðarskóla eiga að hafa fengið gefins sólmyrkvagleraugu til notkunar.

Þá leggjum við mikla áherslu á að allir sýni þolinmæði og tillitssemi þeim viðbragðsaðilum og öðru starfsfólki sem kemur að öryggismálum, gæslu o.s.frv. kringum atburðinn.

Nánari upplýsingar

Fyrir þá sem vilja afla sér frekari upplýsinga bendum við á eftirfarandi upplýsingasíður:
Upplýsingasíða stjórnvalda: https://island.is/v/almyrkvi-2026
Upplýsingasíða Ferðamálastofu: www.ferdamalastofa.is/almyrkvi

Ef þið eruð með frekari spurningar er velkomið að beina þeim til verkefnastjóra Dalabyggðar, Jóhönnu Maríu á netfangið johanna@dalir.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei