Fyrsti vinnudagurinn minn hjá Dalabyggð var 15. júní og má segja að hann hafi gengið afar vel. Fyrstu tímarnir fóru að mestu í ýmis hagnýt atriði, svo sem að komast inn í tölvukerfi, skjalakerfi og annað sem þarf til að hefja störf. Það er notaleg tilfinning að koma aftur í Dalina og allir sem ég hef hitt hafa tekið mjög vel á móti mér.
Ég sat minn fyrsta fund nýkjörinnar sveitarstjórnar 9. júní sl. þar sem meðal annars var gengið frá kjöri í ráð og nefndir. Ákveðið hefur verið að hefja vinnu við að einfalda regluverk á bak við nefndaskipan sveitarfélagsins. Að frá og með hausti verði fræðslunefnd og félagsmálanefnd sameinaðar í eina nefnd, auk þess sem atvinnumálanefnd og menningarmálanefnd verði sameinaðar í eina. Markmiðið er að einfalda stjórnsýslu og auka hagkvæmni.
Næstu verkefni felast meðal annars í að boða fyrstu fundi nýrra fastanefnda, ákveða verkaskiptingu og festa fundartíma þeirra. Fyrsti fundur nýkjörins byggðarráðs fór fram 18. júní þar sem farið var ítarlega ofan í reksturinn og m.a. ákveðið að láta vinna milliuppgjör fyrir fyrstu 5 mánuði ársins svo mögulegt sé að fylgjast náið með framvindu. Eins var ákveðið að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum af ákveðnum auglýstum lóðum í því skyni að styðja við áframhaldandi uppbyggingu á íbúðarhúsnæði. Tekur afslátturinn til lóða sem úthlutað er á árinu 2026. Eins fór fyrsti fundur umhverfis- og skipulagsnefndar fram 23. júní. Ljóst er að fram undan eru fjölmörg spennandi verkefni sem verður ánægjulegt að fylgja eftir.

Mikil stemning ríkti í Búðardal á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Ég og Þorsteinn, eiginmaður minn, sóttum hátíðarhöldin ásamt tveimur yngri sonum okkar, þeim Brynjari Þór, 16 ára, og Arnþóri Frey, 9 ára. Dagskráin var fjölbreytt, skemmtileg og á köflum afar einlæg. Hátíðin hófst í Dalabúð með hátíðlegri athöfn þar sem falleg tónlist skipaði stóran sess. Hátíðarræðan og fjallkonan voru að sjálfsögðu á sínum stað, en fjallkonan flutti ekki aðeins fallegt ljóð heldur tók einnig lagið, sem var skemmtilegt og óvenjulegt uppbrot á dagskránni. Að síðustu var veitt viðurkenning til Dalamanna ársins en viðurkenninguna fengu að þessu sinni Pálmi Jóhannsson og Anna Sigríður Grétarsdóttir. Óska ég þeim kærlega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.
Að athöfn lokinni var haldið að stjórnsýsluhúsinu þar sem sveitarstjórn bauð upp á grillaðar pylsur. Þar var einnig fjölbreytt afþreying fyrir alla fjölskylduna, meðal annars hoppukastalar, kassaklifur, grillaðir sykurpúðar, hestar og margt fleira. Þetta var yndisleg stund og sérstaklega ánægjulegt að hitta svo mörg kunnugleg andlit.


Undanfarnar vikur hafa að stórum hluta farið í að setja mig inn í verkefni sveitarfélagsins og kynna mér rekstur þess. Jafnframt hef ég lagt áherslu á að hitta sem flesta íbúa og starfsfólk sveitarfélagsins. Það er augljóst að mikill mannauður býr innan sveitarfélagsins og þar starfar fólk sem vill samfélagi sínu allt hið besta.
Ég heimsótti meðal annars starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar og leikskóladeild Auðarskóla í liðinni viku. Leikskólahúsnæðið er glæsilegt og býr yfir mjög góðu útisvæði fyrir börnin. Svanhvít Lilja aðstoðarleikskólastjóri leiddi mig um skólann þar sem andrúmsloftið einkenndist af gleði, leik og hlýju, með öflugu starfsfólki sem styður vel við börnin í daglegu starfi.

Gengið var frá ráðningu á nýjum skólastjóra við Auðarskóla og var Katrín Kristjánsdóttir ráðin í starfið. Það verður spennandi að fylgjast með henni takast á við nýjar áskoranir, en hún býr yfir áralangri farsæla reynslu sem kennari. Katrín hefur meðal annars kennt við Auðarskóla um árabil og hefur því mikilvæga innsýn í það góða starf sem þar er unnið. Ég óska henni alls hins besta í nýju starfi og hlakka til samstarfsins á komandi árum.

Seinni vikan endaði svo á Orkumótinu í Vestmannaeyjum þar sem ég fylgdi yngsta syni mínum sem dyggur stuðningsmaður. Þar skiptust á skin og skúrir, bæði á vellinum og í veðrinu, en allir komu heim reynslunni ríkari og sáttir við sitt framlag.

Undirbúningur bæjarhátíðarinnar „Heim í Búðardal“ er nú í fullum gangi, en hún fer fram dagana 3.-5. júlí. Dagskráin er sérlega glæsileg og metnaðarfull og ég vonast til að hitta sem allra flesta á hátíðinni. Ég hvet alla til að láta sjá sig, taka þátt í dagskránni og njóta þess sem Dalirnir hafa upp á að bjóða – bæði hvað varðar menningu, mannlíf og einstaka náttúrufegurð.

