Auglýsing íbúðalóða og afsláttur af gatnagerðargjaldi

Kristján IngiFréttir

Frekara rými hefur skapast til uppbyggingar í Búðardal eftir að deiliskipulag í Búðardal var samþykkt. Þann 18. júní s.l. samþykkti svo byggðarráð Dalabyggðar að auglýsa eftirfarandi lóðir til úthlutunar:

  • Gunnarsbraut 9-11 og 17-19
  • Sunnubraut 18
  • Búðarbraut 3, 5, 7 og 9
  • Ægisbraut 5
  • Stekkjarhvammur 9a

Miðað við fyrirspurnir til skrifstofu og umsóknir um lausar lóðir er eftirspurn eftir lóðum fyrir íbúðarhús í Búðardal. Munu þessar lóðir nýta þá innviði sem fyrir eru og setja heildstæðari brag á gróin hverfi þorpsins, enda eru þær flestar við tilbúnar götur.

Á sama fundi var samþykkt að veita 50% afslátt af gatnagerðargjaldi eftirfarandi lóða sem er úthlutað 2026:

  • Gunnarsbraut 9-11
  • Sunnubraut 18
  • Búðarbraut 3, 5, 7 og 9
  • Ægisbraut 5
  • Stekkjarhvammur 9a
  • Bakkahvammur 2

Við hvetjum því áhugasama um að skoða þann möguleika og sækja um fyrir árslok, meðan afslátturinn er í gildi.

Auglýsing lóðanna stendur til 19. júlí sem einnig er umsóknarfrestur. Eftir afgreiðslu umsókna verða þær lóðir sem ekki var sótt um eða úthlutað lausar strax til úthlutunar sé sótt um. Áhugasamir um lausar lóðir hafi samband við skrifstofu Dalabyggðar í 430-4700 eða með því að senda fyrirspurn á dalir@dalir.is

Nánari upplýsingar um lausar lóðir og ferlið eru hér: Lausar lóðir

Á kortasjá Dalabyggðar er hægt að skoða lóðirnar og nálgast skipulagsskilmála: Kortasjá, lausar lóðir

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei