Dalabyggð auglýsir eftir starfsmanni í 20% starf við félagsmiðstöðina Gildruna.
Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf með börnum og unglingum. Starfsmaðurinn aðstoðar við umsjón og framkvæmd starfs félagsmiðstöðvarinnar í samstarfi við lýðheilsufulltrúa Dalabyggðar.
Helstu verkefni
- Að taka þátt í daglegu starfi félagsmiðstöðvarinnar.
- Að stuðla að jákvæðu, öruggu og uppbyggilegu umhverfi fyrir börn og unglinga.
- Að hvetja þátttakendur til virkni, frumkvæðis og sjálfstæðis.
- Að aðstoða við undirbúning, skipulagningu og framkvæmd viðburða á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
Vinnutími og starfshlutfall
Um er að ræða 20% starfshlutfall. Vinnutími er á opnunartíma félagsmiðstöðvarinnar, tvo virka daga í viku, auk nokkurra kvölda yfir skólaárið í tengslum við viðburði.
Miðað er við að viðkomandi hefji störf 1. september.
Hæfniskröfur
- góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði í starfi.
- menntun á sviði uppeldis, kennslu eða félagsgreina er kostur.
- reynsla af starfi með börnum og unglingum er kostur.
Umsækjendur þurfa að skila inn sakavottorði í samræmi við gildandi lög og reglur.
Laun og ráðning
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.
Starfið hentar fólki af öllum kynjum. Ráðið verður í stöðuna eins fljótt og kostur er.
Umsóknarfrestur er til 28. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Ísak Sigfússon, lýðheilsufulltrúi, isak@dalir.is
Umsókn ásamt kynningarbréfi og feriskrá skal senda á sama netfang.
