Miklar endurbætur á leikskóladeild Auðarskóla í sumar

DalabyggðFréttir

Í sumar var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á leikskóladeild Auðarskóla með það að markmiði að bæta aðstöðu fyrir börn og starfsfólk. Framkvæmdirnar hafa lífgað töluvert upp á húsnæðið og skapað enn betra umhverfi fyrir daglegt starf leikskólans.

Eldhúsið var uppfært og aðstaðan þar bætt. Allur gólfdúkur var bónaður og yfirfarinn, en einnig voru deildir, salur og gangar máluð. Með þessum breytingum hefur húsnæðið fengið bjartara, hlýlegra og snyrtilegra yfirbragð sem tekur vel á móti börnum, foreldrum og starfsfólki þegar nýtt skólaár hefst.

Það er því óhætt að segja að leikskóladeild Auðarskóla taki á móti haustinu í nýjum búningi og sé vel undirbúin fyrir spennandi og viðburðaríkt skólaár.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei