Draugasaga í Sævangi

DalabyggðFréttir

Miðvikudagskvöldið 7. okt. verður einleikurinn Draugasaga frumsýndur í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum. Það er Leikfélag Hólmavíkur sem setur verkið upp í samvinnu við Sauðfjársetur á Ströndum.
Leikritið Draugasaga er eftir Jón Jónsson á Kirkjubóli og var skrifað á síðasta ári. Það byggir á þjóðsögum af svæðinu, sígildri mannvonsku og margvíslegum myrkraverkum fyrri alda. Verkið er ekki við hæfi barna 12 ára og yngri.
Á frumsýningunni er mæting kl. 20 og þá verður súpa á boðstólum fyrir sýningu og svo kaffi á eftir og aðgöngumiðinn kostar 2.800 kr með veitingum. Sýningin sjálf er um klukkustund. Strandamenn og nærsveitungar eru hvattir til að fjölmenna á frumsýninguna, pöntunarsími er 693 3474 (Ester) og nóg af lausum sætum.
Jón Jónsson höfundur verksins leikstýrir Draugasögu, en Arnór Jónsson er leikarinn. Hemúllinn samdi hljóðmyndina, Ásta Þórisdóttir og Ester Sigfúsdóttir sjá um förðun og búninga og Jón Valur Jónsson um tæknimál ásamt Jóni.
Næstu sýningar verða föstudaginn 9. október kl. 22 og fimmtudaginn 15. október kl. 20. Hugmyndin er svo að í vetur geti hópar sem eiga leið á Strandir í ýmsum erindagerðum pantað sér sýningu á Draugasögu í Sævangi og veitingar með eftir því sem áhugi er á.

Sauðfjársetur á Ströndum – fb

Leikfélag Hólmavíkur – fb

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei