Komin er til kynningar í Skipulagsgátt umhverfismatsskýrsla vegna áforma um 2.780 ha skógrækt í landi Ljárskóga í Dalabyggð og opið fyrir athugasemdir til 13. október nk.
Yggdrasill Carbon ehf. hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í Dalabyggð í samstarfi við landeigendur á svæði sem nær yfir alls um 5.500 ha. Einungis verður þó plantað í að hámarki 2.780 ha, eða 51% svæðisins. Er það vegna þess að ekki verður plantað í votlendi og 15 m svæði umhverfis það. Sömuleiðis verður ekki plantað í 20 m svæði umhverfis fornminjar. Það hefur því dregið verulega úr skógræktaráformum frá því sem kynnt var á matsáætlunarstigi.
Markmið skógræktarverkefnisins er að binda koltvísýring úr andrúmslofti, bæta vatnafar og aðstæður fyrir lax í Fáskrúð, búa til beitarskóg, byggja upp skógarauðlind í samstarfi við sauðfjárbændur og græða upp landið ásamt því að vera framlag í baráttunni gegn þeim miklu loftslagsbreytingum sem eru að eiga sér stað.
