Þá er Íþróttavika Evrópu liðin hjá. Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive. Hér að neðan er það helsta sem gekk á hjá okkur í Dalabyggð í vikunni sem leið.
Íþróttavikan okkar byrjaði þann 22. september þegar að hann Guðmundur Brynjar Júlíusson (Gummi) kom og var með sundnámskeið fyrir börn í 1.-4. bekk. Þar mættu sex krakkar, þrír strákar og þrjár stelpur og gekk það mjög vel að sögn Gumma
Síðar sama dag var Gummi með Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna en þar voru þau þrjú sem mættu og nýttu sér það tækifæri. Tvær konur og einn karl. þar sem þau voru þrjú þá þýddi það að þau gátu verið með heila sundbraut fyrir sig. Námskeiðið gekk vel og sagðist Gummi hafa séð mikla framför hjá þeim sem mættu.

Sundlaugin í Búðardal
Þann 23. september fékk Auðarskóli heimsókn frá Borðtennissambandi Íslands, Frjálsíþróttasambandi Íslands og Bergþóri Olivert Thorstenssyni folfara (frisbí golfara). Auður Tinna Aðalbjarnardóttir frá Borðtennissambandinu var með smá grunnáherslur í borðtennis, fór yfir reglur leiksins og endaði á skemmtilegum leik. UDN (Ungmennasamband Dalamanna og Norður Breiðfirðinga) styrkti Auðarskóla með kaupum á 16 glænýjum borðtennisspöðum. Björg Gunnarsdóttir var með kynningu á frjálsum íþróttum inni í félagsheimilinu Dalabúð og fór með krakkana í nokkra leiki og æfði kastgreinar. Bergþór Olivert Thorstensen var með kynningu á Frisbígolfi, hann var með kynninguna úti á sparkvellinum hjá Auðarskóla og lét rigninguna ekki trufla sig.

Miðstigsbekkirnir í borðtennis

Yngsta stigið í frjálsum íþróttum í Dalabúð

Miðstigsbekkirnir í folf æfingum úti á sparkvelli
Fimmtudaginn 24. september mætti Guðríður S Brynjarsdóttir (Gauja) með flot í sundlaugina í Búðardal. Það voru fjórtán konur sem skráðu sig á námskeiðið og mættu þær allar. Til stóð að hita sundlaugina upp í ~37°C en það er kjörhitastig fyrir flot og hugleiðslu í vatni. Sundlaugin var komin upp í 36°C að morgni fimmtudags en hafði lækkað niður í 33°C þegar kom að námskeiðinu vegna mikillar vindkælingar. Gauja mætti með flothettur og fótaflot fyrir alla. Námskeiðið gekk vel fyrir sig og voru þátttakendur og Gauja gríðarlega ánægð að námskeiðinu loknu þrátt fyrir að hitastigið og veðrið hafi sett smá strik í reikninginn.

Hér er flotið um allt með flothettur og fótaflot á fótum
Mánudaginn 24. september var Carla Maeso Mota með Vinyasa Jóganámskeið inni í félagsheimilinu Dalabúð. Vinyasa er stundum kallað flæðisjóga á íslensku en þar er lögð meiri áhersla á flæði í hreyfingum og jógastöðum í stað þess að halda jógastöðunum til lengri tíma. Það mættu 11 manns á jóganámskeiðið og er ákall eftir reglulegum jógatímum í sveitarfélaginu.

Carla Jógakennari
Íþróttavikunni lauk síðan miðvikudaginn 30. september með Sundlaugarpartýi í Sundlauginni í Búðardal. Sundlaugin var hituð upp fyrir þann viðburð, sett upp diskóljós og borð fyrir plötusnúð. 44 manns á öllum aldri mætti í sundlaugarpartýið og var þar mikið fjör, mikil stemning og allt sundlaugardót notað í lauginni. DJ Jacuzzi spilaði tónlist fyrir sundlaugargestina.

það var margt um manninn

DJ Jacuzzi „þeytir skífum“
Skipuleggjendur íþróttavikunnar vilja koma þökkum sínum á framfæri fyrir jákvæðar undirtektir og góða þátttöku á viðburðum íþróttavikunnar! Samtals voru þátttakendur á öllum viðburðum í Dalabyggð 144 talsins.
