Mánudaginn 5. október voru afhentar viðurkenningar til þeirra þátttakenda sem skiluðu inn útfylltum bingóblöðum í sumarlestri Héraðsbókasafns Dalasýslu.
Alls voru það 10 börn og 2 fullorðnir sem skiluðu inn blöðum, og var góð mæting þegar viðurkenningarnar voru afhentar.
Um afhendinguna sáu þær Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri Dalabyggðar og Sigríður Jónsdóttir bókavörður.
Bestu þakkir til þeirra sem tóku þátt hvort sem það náðist að fylla út bingóblaðið eða ekki.
Lestur er holl og góð tómstundaiðja, æfir okkur í að skilja, kennir okkur ný orð, segir okkur sögur, fræðir og gleður.

