Það er alltaf eitthvað nýtt og áhugavert að gerast í Dalabyggð. Síðustu vikur hafa einkennst af fjölbreyttum verkefnum, skemmtilegum heimsóknum og góðum samverustundum með íbúum, atvinnurekendum og samstarfsaðilum.
Vikan hófst á einstaklega notalegri heimsókn í Dalahyttur í Hörðudal þar sem ég settist niður yfir morgunkaffi með Guðrúnu og Gulla, sem hafa byggt upp einstaka starfsemi á staðnum. Það er virkilega gaman að sjá þann metnað og dugnað sem liggur að baki uppbyggingunni. Sérstaklega vakti athygli mín hvernig gamall braggi hefur fengið nýtt líf sem hlýlegur og glæsilegur veitingasalur þar sem gamalt og nýtt mætast á afar skemmtilegan hátt. Húsin sem standa gestum til boða eru vel búin og umhverfið allt einstaklega aðlaðandi. Falleg náttúra, góður matur og hlýlegt andrúmsloft skapa aðstæður sem gestir eiga án efa erfitt með að gleyma.


Haldnir voru glæsilegir tónleikar í Hjarðarholtskirkju en tónlistarmennirnir KK og Mugison spiluðu fagra tóna fyrir tónleikagesti.
Eitt af stærri verkefnum síðustu daga var Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem fram fór á Varmalandi dagana 14. og 15. október. Þar komu saman sveitarstjórar og kjörnir fulltrúar af öllu Vesturlandi til að ræða framtíðarsýn og stefnumótun fyrir landshlutann. Þrátt fyrir að veðrið hafi sett sitt mark á dagskrána voru umræðurnar bæði málefnalegar og uppbyggilegar, enda mikilvægt að sveitarfélög vinni saman að því að styrkja byggðir og þjónustu á svæðinu.

Þá lá leið mín til Stykkishólms þar sem undirritaður var samningur um uppbyggingu og starfsemi nýs þekkingarseturs á Vesturlandi. Verkefnið er spennandi skref í átt að auknu samstarfi á sviði rannsókna, menntunar og nýsköpunar. Hugmyndin er að tengja betur saman einstaklinga, fyrirtæki, menntastofnanir og opinbera aðila og byggja þannig upp öflugt þekkingarnet sem styrkir samfélögin á svæðinu. Slík samvinna getur skapað fjölmörg tækifæri til framtíðar.

Í síðustu viku heimsótti ég einnig Staðarfell þar sem fundað var um framtíðarmöguleika kirkjulóðarinnar og mögulega stækkun bílastæða. Heimsóknin gaf jafnframt tækifæri til að skoða þær framkvæmdir sem nú eru í gangi á svæðinu. Þar rís glæsilegt hótel sem án efa verður mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf og ferðaþjónustu í Dölunum. Náttúrufegurðin á Staðarfelli er einstök og fuglalífið setur sérstakan svip á staðinn. Það er auðvelt að skilja af hverju sífellt fleiri sjá þar tækifæri til uppbyggingar.

Í Dalabyggð var Bleiki dagurinn einnig haldinn hátíðlegur. Starfsfólk stjórnsýsluhússins mætti til vinnu í bleiku og sýndi þannig samstöðu með þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Dagurinn var hlýr og fallegur áminning um mikilvægi samstöðu, stuðnings og umhyggju í samfélaginu.

Sveitarstjórn bauð jafnframt í morgunkaffi síðastliðinn laugardag. Ánægjulegt var að sjá góða mætingu og líflegar umræður um málefni sveitarfélagsins. Sérstaklega var gaman að fá Ólaf Adolfsson, alþingismann Norðvesturkjördæmis, til að líta við og ræða við gesti ásamt sveitarstjórnarfulltrúum. Slíkir fundir eru mikilvægur vettvangur fyrir samtal og skoðanaskipti.

Helginni lauk svo með einum af skemmtilegustu viðburðum haustsins þegar Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda fór fram. Dagskrá laugardagsins fór fram í reiðhöllinni en þar gátu gestir skoðað glæsilega hrúta, verslað á matar- og handverksmarkaði. Hápunktur dagsins var þó án efa Íslandsmeistaramótið í rúningi þar sem spennan var áþreifanleg og stemningin mögnuð. Þegar upp var staðið var það Dalamaður, Vignir Smári Valbergsson, sem stóð uppi sem sigurvegari eftir feikilega sterka keppni. Ég vil óska honum innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Um kvöldið var svo hin víðsfræga sviðaveisla þar sem yfir 300 manns hittust, borðuðu saman svið og skemmtu sér fram á rauða nótt.


Ég minni á Hrekkjavökugöngu sem verður á milli 17.30 og 19:30 á morgun 27. október en þá eru vegfarendur sérstaklega beðnir um að gæta sín á alls konar verum sem verða á ferðlagi og snýkja nammi. Einnig mun nemendafélag grunnskólans bjóða upp á draugahús í tilefni hrekkjavökunnar í kjallara Dalabúðar.

Það er óhætt að segja að síðustu vikur hafi sýnt vel þann kraft sem býr í samfélaginu okkar. Hvort sem um er að ræða atvinnuuppbyggingu, menningu, samveru eða framtíðarsýn fyrir svæðið þá er víða verið að vinna gott starf sem gefur fullt tilefni til bjartsýni.
Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri
