Kynningarfundir – Fjárhagsáætlun 2027-2030 og þjónustustefna

DalabyggðFréttir

Þriðjudaginn 17. nóvember nk. verða haldnir tveir kynningarfundir þar sem farið verður yfir fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir 2027-2030 og einnig rýnt í þjónustustefnu sveitarfélagsins. Dagskrá fundanna er þannig sú sama og fara þeir fram í Auðarstofu (Nýsköpunarsetri) að Miðbraut 11 í Búðardal. Fyrri fundurinn verður kl. 17:00 – 18:00 og seinni fundurinn 20:00 – 21:00. Það verður heitt á könnunni og vonumst við til að íbúar mæti til að kynna sér málin og taka þátt í umræðum.

Fjárhagsáætlun

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum (nr.138/2011) skal sveitarstjórn á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Saman mynda þessar áætlanir fjögurra ára áætlun fyrir sveitarfélagið sem felur í sér heildaráætlun um fjármál sveitarfélagsins á tímabilinu, bæði A- og B-hluta. Þá ber sveitarstjórn að hafa tvær umræður um fjárhagsáætlun. Stefnt er að fyrri umræðu á sveitarstjórnarfundi þann 12. nóvember nk. og því er boðað til kynningarfunda á milli umræðna í sveitarstjórn. Með þessu móti geta íbúar komið á framfæri ábendingum varðandi áætlunina áður en síðari umræða fer fram.

Þjónustustefna

Þá kom inn breyting í fyrr nefnd sveitarstjórnarlög sumarið 2021 sem varðar svokallaða þjónustustefnu (130. gr. a.) þar sem kveðið er á um að samhliða fjárhagsáætlunargerð skuli sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú ár á eftir um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðarkjörnum viðkomandi sveitarfélags. Við gerð og mótun stefnunnar skal sveitarstjórn hafa samráð við íbúa sveitarfélagsins og því verður stefnan einnig tekin til umræðu á kynningarfundunum. Þjónustustefnan skal einnig fá tvær umræður í sveitarstjórn og hentar því vel að skoða þessi mál saman.

Sveitarfélög sinna ýmsum verkefnum sem þeim eru falin skv. lögum, svokölluð lögmælt verkefni (lögskyld/lögheimil), en geta einnig innan vissra marka, tekið að sér önnur verkefni sem ekki er kveðið á um í lögum (valkvæð). Yfirlit yfir lögmælt verkefni má finna á vef Stjórnarráðsins, eða hér: Verkefni sveitarfélaga
Þó má geta þess að einhver verkefni standa utan við í Dalabyggð. Má nefna t.d. verkefni sem eiga ekki við s.s. aðilar sem nota eingöngu gasolíu sem orkugjafa til hitunar íbúðarhúsnæðis, verkefni sem eru með öðrum hætti t.d. samstarfsnefnd um málefni lögreglu sem fellur inn í starf Almannavarnanefdar Vesturlands eða ekki er grunnur fyrir að svo stöddu, þó það geti breyst t.d. mál er varða leigubifreiðar innan sveitarfélagsins.

Hérna má sjá gildandi þjónustustefnu Dalabyggðar: Þjónustustefna Dalabyggðar 2022 – 2026 sem getur verið gott að rýna fyrir tilvonandi fundi.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei