Skóflustunga tekin að parhúsi í Búðardal

SveitarstjóriFréttir

Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri Dalabyggðar og Iða Marsibil Jónsdóttir framkvæmdarstjóri Leigufélagsins Bríetar tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýbyggingu að Borgarbraut 6-8 í Búðardal.
Um er að ræða parhús en hvor íbúð um sig er 80 m2 og skiptist húsið í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og forstofu. Húsið er skemmtilega staðsett í miðjum bænum.
Framkvæmdin markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu í Dalabyggð þar sem íbúum hefur fjölgað undanfarin ár og þörf fyrir fjölbreytt húsnæði aukist samhliða.
Iða Marsibil segir bygginguna styðja vel við markmið og framtíðarsýn félagsins „Markmið Bríetar er að vera hluti af uppbyggingu og styrkingu leigumarkaðar sem stuðlar að öryggi á langtímaleigumarkaði með sérstaka áherslu á landsbyggðina og í samstarfi við sveitarfélögin í landinu. Langtímamarkmið Bríetar er að stuðla að nýsköpun og uppbyggingu þar sem þörf er á því á landsbyggðinni.“
Lilja segir að það sé afar ánægjulegt og mikilvægt að húsnæðisuppbygging haldi áfram í Búðardal. „Mikill húsnæðisskortur er í sveitarfélaginu og eignir staldra stutt við á fasteignasölum. Hver ný íbúð skiptir máli fyrir lítið samfélag eins og okkar. Hér er verið að byggja fyrir fólk, fjölskyldur og framtíðina, og það er einmitt svona uppbygging sem heldur byggðunum lifandi og gefur fólki raunverulegt tækifæri til að setjast hér að. Áframhaldandi uppbygging er forsenda þess að við getum tekið á móti nýjum íbúum, stutt við atvinnulífið og haldið áfram þeirri jákvæðu þróun sem við höfum séð í Dalabyggð á undanförnum árum“
Samstarfið hefur gengið mjög vel og eru frekari samstarfsverkefni í pípunum á milli Dalabyggðar og Bríetar en vonir standa til þess að Bríet standi fyrir frekari uppbygginu íbúða í Búðardal þegar á næsta ári.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei