Undanfarnar tvær vikur hafa einkennst af fjölbreyttum verkefnum þar sem húsnæðismál, innviðauppbygging, velferðarmál og hagsmunagæsla sveitarfélagsins hafa verið í brennidepli. Jafnframt hafa verið tekin mikilvæg skref í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins og átt samtöl við fjölmarga samstarfsaðila um verkefni sem snerta íbúa Dalabyggðar.
Tímabilið hófst á því að ég og Skjöldur Orri lögreglumaður mættum snemma á sunnudagsmorgni í útvarpsþáttinn Á Sprengisandi á Bylgjunni. Þar ræddum við stöðu löggæslumála í Dalabyggð og lýstum yfir áhyggjum af fyrirhugaðri sameiningu lögregluumdæma í þrjú. Þeir sem hafa áhuga á að hlýða á viðtalið geta nálgast það á meðfylgjandi slóð. Treystum á breytingar hjá ráðherra – Útvarp – Vísir

Fundað var með framkvæmdastjóra Brákar, óhagnaðardrifins leigufélags sem hefur það hlutverk að auka framboð á húsnæði fyrir tekjulægri hópa. Mikill áhugi er á áframhaldandi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og afar vel hefur gengið með þær íbúðir sem félagið leigir nú þegar út í sveitarfélaginu.
Ég tók þátt í tveimur reglubundnum fjarfundum framkvæmdastjóra sveitarfélaga með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga undir yfirskriftinni morgunbollinn. Þar voru kjaramál kennara meðal þeirra mála sem voru í brennidepli.
Starfsmenn Dalabyggðar funduðu einnig með sérfræðingum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þar sem farið var yfir styrkhæfar leiðir, umsóknarferli og þær forsendur sem liggja að baki framlögum sjóðsins. Slík vinna er mikilvæg til að tryggja að sveitarfélagið njóti þeirra stuðningsúrræða sem því standa til boða.
Ég mætti á morgunverðarfund með starfsfólki Vegagerðarinnar í Dalabyggð þar sem farið var yfir stöðu samgöngumála, viðhaldsverkefni, fjármögnun og önnur málefni sem snerta vegakerfið í sveitarfélaginu.

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi heimsótti Dalabyggð og hélt stjórnarfund sinn hér á staðnum. Af því tilefni kynnti ég sveitarfélagið, helstu verkefni þess og þau tækifæri sem fram undan eru. Að fundi loknum var farið í skoðunarferð um Íþróttamiðstöðina í Búðardal sem vakti verðskuldaða athygli gesta, ekki síst fyrir glæsilega aðstöðu og einstakt útsýni.

Einn af hápunktum tímabilsins var þegar tekin var fyrsta skóflustungan að nýju parhúsi við Borgarbraut 6-8 í Búðardal. Framkvæmdin er á vegum Leigufélagsins Bríetar og markar mikilvægt framfaraskref í húsnæðisuppbyggingu
sveitarfélagsins. Hvor íbúð verður 80 fermetrar að stærð með góðu skipulagi. Boðið var upp á stálheiðarlega rjómatertu þegar búið var að taka skóflustunguna og fengum við til okkar góða gesti til að fagna með okkur.

Ég ásamt fulltrúum sveitarstjórnar fundaði einnig með Þóru hjúkrunarforstjóra Fellsenda og Þórði lækni. Farið var yfir fyrirhugaða uppbyggingu stofnunarinnar en stefna þau m.a. á fjölgun hjúkrunarrýma og endurbætur á eldra húsnæði, sem styrkir þjónustu og atvinnustarfsemi á svæðinu.
Fulltrúar Björgunarsveitarinnar Óskar komu á fund byggðarráðs til að ræða framtíðarhúsnæði sveitarinnar. Samhliða var rifjuð upp viljayfirlýsing um uppbyggingu sameiginlegrar björgunarmiðstöðvar þar sem björgunarsveit, slökkvilið og lögregla gætu starfað undir sama þaki til hagsbóta fyrir öryggi íbúa og viðbragðsgetu á svæðinu. Vilji er til að skoða málið áfram.

Loks bauð Dalabyggð nýjan starfsmann velkominn til starfa. Helga María Harðardóttir hefur hafið störf sem verkefnastjóri fjölskyldumála og leysir þar af Jónu Björgu Guðmundsdóttur. Það er ánægjulegt að fá Helgu Maríu til liðs við starfsmannahópinn og við hlökkum til samstarfsins.
Það er ánægjulegt að sjá hversu mörg mikilvæg verkefni eru í farvegi um þessar mundir. Hvort sem um ræðir húsnæðisuppbyggingu, innviðamál, velferðarþjónustu eða hagsmunagæslu sveitarfélagsins þá er markmiðið ávallt hið sama: að styrkja Dalabyggð sem eftirsóknarvert samfélag til búsetu, atvinnu og mannlífs. Fram undan eru áfram spennandi verkefni og ég hlakka til að fylgja þeim eftir á komandi vikum.
Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri Dalabyggðar
