Verum viðbúin

DalabyggðFréttir

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn Verum viðbúin, sem ætlað er að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins.

Með góðum undirbúningi getur þú sinnt grunnþörfum heimilisins um tíma og stutt við fólk í þínu nánasta umhverfi. Mikilvægt er að búa til áætlun og eiga vatn, mat og nauðsynjavörur sem duga í að minnsta kosti þrjá daga. Bæklingurinn kemur að góðum notum í þessum undirbúningi.

Bæklingurinn verður sendur rafrænt í gegnum Ísland.is og markar tímamót í miðlun upplýsinga um viðbúnað til almennings. Hann er jafnframt aðgengilegur á vefsíðunni verumvidbuin.is á íslensku, ensku og pólsku, auk útgáfu á auðlesnu máli og á táknmáli.

Í vikunni verður prentaðri útgáfu bæklingsins dreift á völdum stöðum um land allt með aðkomu björgunarsveita Landsbjargar samhliða sölu Neyðarkallsins. Markmiðið er að tryggja að sem flestir hafi aðgang að upplýsingum sem geta skipt sköpum þegar á reynir.

Við hvetjum íbúa Dalabyggðar til að kynna sér málið á verumvidbuin.is þar er sem fyrr segir hægt að nálgast bæklinginn á ýmsum tungumálum og útgáfum, ásamt góðum upplýsingum og mikilvægum símanúmerum.

 

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei