Rekstur Vínlandsseturs laus til umsóknar

DalabyggðFréttir

Sveitarfélagið Dalabyggð auglýsir eftir aðila/um sem hafa áhuga á að reka Vínlandssetur. Um er að ræða húsið Leifsbúð að Búðarbraut 1 í Búðardal.

Á efri hæð er metnaðarfull og vönduð sögusýning með hljóðleiðsögn sem segir sögu landafundanna á Grænlandi og í Ameríku, en á neðri hæð er rými fyrir t.d. frekara sýningarhald, verslun og/eða veitingasölu, með eldhúsi.

Sýningin og allt sem henni viðkemur er í eigu Dalabyggðar og leigist með rekstrinum. Leiga verður reiknuð sem hlutfall af tekjum (7% af almennri sölu) sem gefur rekstraraðilum gott svigrúm til uppbyggingar. Útbúa þarf neðri hæð í samræmi við rekstraráform þar sem fráfarandi rekstraraðili á meirihluta búnaðar og húsgögn.

Fráfarandi rekstraraðili er opinn fyrir því að selja nýjum rekstraraðila hluta eldhús- og veitingabúnaðar ásamt húsgögnum sem hann á og hefur nýtt í húsnæðinu. Þau viðskipti væru án aðkomu Dalabyggðar. Núverandi rekstraraðilar áskilja sér rétt til að selja eigur sínar, verði ekki komin skýr kaupáform um áramót.

Óskað er eftir því að umsókn fylgi vel útfærð hugmynd að rekstri á sýningunni og annarri starfsemi sem rúmast í húsinu í núverandi mynd þess.

Í umsókn skal koma fram eftirfarandi: Nafn rekstraraðila, bakgrunnur forsvarsfólks og þekking á rekstri. Nákvæm útfærsla á hugmynd um rekstur í húsinu, ásamt einfaldri áætlun um kostnað og tekjur.
Við úrvinnslu umsókna verður horft til heildarmats á viðskiptahugmynd, rekstrarforsendum og reynslu/bakgrunn umsækjanda.

Húsið er í góðu ástandi og ekki brýn þörf á viðhaldi. Það er friðað að hluta og ekki leyfilegt að breyta ytri ásýnd þess. Rekstraraðili sér um garð og allan daglegan rekstrarkostnað af húsinu.

Nánari upplýsingar hjá verkefnastjóra Dalabyggðar, Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, netfang: johanna@dalir.is , sími: 430-4700

Hægt verður að ganga um húsið og skoða það föstudaginn 27. nóvember nk. frá kl. 16-18. Þau sem hafa áhuga á að mæta í skoðun skulu melda sig til verkefnastjóra (johanna@dalir.is)

Umsóknarfrestur til og með 6. desember. Umsóknum skal skila á sama netfang, þ.e. johanna@dalir.is

Dalabyggð vill benda áhugasömum á að hægt er að fá ráðgjöf varðandi m.a. rekstrar- og kostnaðaráætlun hjá atvinnuráðgjöfum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Nánari upplýsingar um það má finna á www.ssv.is

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei