Menningarráð Vesturlands

DalabyggðFréttir

Menningarráð Vesturlands auglýsir eftir umsóknum um menningarstyrki vegna starfsársins 2011.
Áherslur Menningarráðs Vesturlands vegna styrkveitinga eru eftirfarandi:
· Verkefni sem draga fram sérkenni og menningu Vesturlands.
· Verkefni sem styðja menningartengda ferðaþjónustu og auka atvinnu.
· Menningarstarf sem stuðlar að nýsköpun, eykur listrænt starf og frumkvöðlastarf.
· Verkefni sem eflir samstarf milli svæða í menningarmálum og menningarferðaþjónustu.
· Verkefni sem hvetja til listræns samstarfs eldri og yngri borgara Vesturlands.
· Verkefni sem efla fræðslu í listrænum og menningarlegum tilgangi.
Upplýsingar um styrkina eru á heimasíðu verkefnisins
Einnig veitir menningarfulltrúi frekari upplýsingar í síma 433 2313 / 892 5290 eða í tölvupósti
Umsóknarfrestur rennur út 20. desember 2010 og skal umsóknum skilað með rafrænum hætti á vef menningarráðsins
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei