Félagsþjónustan

DalabyggðFréttir

Viðtalstímar félagsráðgjafa hafa verið fluttir á fyrsta og þriðja miðvikudag í mánuði. Tímapantanir eru í síma 433 7100 eða 898 9222.
Samningur er við Borgarbyggð um félagsþjónustu og þjónustu í barnaverndarmálum. Undir þann samning falla fjárhagsaðstoð, félagsleg ráðgjöf, félagsleg liðveisla og annar stuðningur við fatlað fólk og fjölskyldur fatlaðra barna, leyfisveitingar vegna daggæslu í heimahúsum og barnavernd.
Auk viðtalstíma í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal er hægt að hafa samband við félagsþjónustuna símleiðis í síma 433 7100 á milli kl. 9 og 15 aðra virka daga, fá upplýsingar, ráð eða ákveða aðra stund og annan tíma, allt eftir aðstæðum.
Skrifstofa félagsmálastjóra Borgarbyggðar er á Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Sími 433 7100 og fax 433 7101.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei