Úr mold í stein

DalabyggðFréttir

Fyrsta sögustund ársins 2018 verður laugardaginn 6. janúar kl. 15 á Byggðasafni Dalamanna. Þá mun Bogi Kristinsson byggingafulltrúi Dalabyggðar segja frá þróun torfbæja til steinsteypuhúsa, gera grein fyrir ólíkum byggingastílum síðari tíma og mikilvægi varðveislu eldri húsa.
Aðgangseyrir á sögustundir verður sem fyrr 500 kr fyrir fullorðna og frítt fyrir börn yngri en 18 ára í fylgd með fullorðnum. Kaffi á könnunni.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei