 Nú í vikunni  undirrituðu fulltrúar Dalabyggðar og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi samstarfssamning um verkefnið „Fræðslustjóri að láni“.
Nú í vikunni  undirrituðu fulltrúar Dalabyggðar og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi samstarfssamning um verkefnið „Fræðslustjóri að láni“.Markmiðið með þessum samstarfssamningi er að gera þarfagreiningu með öllum almennum starfsmönnum Dalabyggðar og í framhaldinu verður mótuð heildstæð fræðsluáætlun sem byggir m.a. á niðurstöðum þarfagreiningarinnar. 
Símenntunarmiðstöðin hefur umsjón með verkefninu, en verkefnið er fjármagnað af Mannauðssjóði Samflots. Helga Björk Bjarnadóttir verkefnastjóri Símenntunarmiðstöðvarinnar kemur til með að halda utan um verkefnið.