Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Tillaga að deiliskipulagi Skoravíkur á Fellsströnd”
29.11.2024

Tillaga að deiliskipulagi Skoravíkur á Fellsströnd

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti 17. október 2024 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Skoravíkur skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið tekur til jarðarinnar Skoravíkur í heild sinni. Þar er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss ásamt gestahúsum og þjónustubyggingum til að hýsa tæki og annað sem tengist starfsemi á jörðinni. Deiliskipulagstillagan er til kynningar í skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is/issues/2024/1313 með
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Guðný Erna Bjarnadóttir ráðin Lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar”
29.11.2024

Guðný Erna Bjarnadóttir ráðin Lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar

Dalabyggð hefur ráðið Guðnýju Ernu Bjarnadóttur sem lýðheilsufulltrúa sveitarfélagsins. Guðný Erna hefur undanfarin fimm ár búið og starfað í Noregi, þar sem hún vann við neyðarvistun fyrir ungmenni og neyðarúrræði fyrir fólk með fíknivanda og geðsjúkdóma. Hún hefur einnig starfað sem íþróttafræðingur á Heilsustofnun í Hveragerði og sem sundþjálfari. Guðný Erna er með B.Sc. gráðu í íþrótta- og heilsufræði frá
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Kynning á fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2025-2028”
28.11.2024

Kynning á fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2025-2028

Þriðjudaginn 3. desember verða haldnir tveir opnir fundir í Nýsköpunarsetrinu (Miðbraut 11 í Búðardal, jarðhæð) til kynningar á fjárhagsáætlun Dalabyggðar til að gefa sem flestum íbúum tækifæri á að mæta. Fyrri fundurinn verður kl. 17:00 og sá seinni kl. 20:00 Dagskrá beggja funda: Fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2025 – 2028 Heitt á könnunni og íbúar hvattir til að mæta.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Jólaaðstoð – umsókn”
27.11.2024

Jólaaðstoð – umsókn

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir vegna jólaaðstoðar, í ár verður boðið upp á bónus kort, vinsamlegast sendið tölvupóst á snaevara@kirkjan.is Til að sækja um þarf að senda tölvupóst með með fjölda heimilismeðlima og aðeins um aðstæður ykkar, fullum trúnaði er heitið. Úthlutun verður 6. desember.  – Snævar prestur
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Forvarnarhópur Dalabyggðar tekinn til starfa”
27.11.2024

Forvarnarhópur Dalabyggðar tekinn til starfa

Líkt og fram kom í frétt þann 20.9.2024 var erindisbréf um stofnun forvarnarhóps Dalabyggðar samþykkt á 249. fundi sveitarstjórnar. Hópinn skipa fulltrúi frá lögreglunni á Vesturlandi, heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), félagsþjónustu Dalabyggðar, Auðarskóla, auk fulltrúa frá íþrótta- og tómstundastarfi Dalabyggðar. Hópurinn hefur formlega tekið til starfa og er farin af stað vinna við gerð forvarnarstefnu Dalabyggðar fyrir árin 2025 – 2027.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Rafmagnsleysi vegna vinnu við dreifikerfi”
26.11.2024

Rafmagnsleysi vegna vinnu við dreifikerfi

Rafmagnslaust verður frá Hrappsstöðum að Sólheimum þann 27.11.2024 frá kl 13:00 til kl 16:00 vegna vinnu við dreifikerfið. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 5289000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar”
21.11.2024

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Alþingiskosningar verða haldnar 30. nóvember 2024 og atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Dalabyggð fer fram í afgreiðslu sýslumannsins á Vesturlandi að Miðbraut 11 í Búðardal, 2. hæð. Opið verður fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar sem hér segir: Fimmtudaginn 21. nóvember frá kl. 09:00 –  14:00 Mánudaginn 25. nóvember frá kl. 09:00 – 13:00  (athugið að þennan dag
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Jólagjöf til starfsmanna Dalabyggðar – kallað eftir þátttöku”
19.11.2024

Jólagjöf til starfsmanna Dalabyggðar – kallað eftir þátttöku

Dalabyggð auglýsir eftir framleiðindum, veitinga-/verslunar- og/eða þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem er jólagjöf sveitarfélagsins til starfsmanna Dalabyggðar. Fyrirkomulaginu verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf ásamt upptalningu á aðilum í Dalabyggð sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og/eða þjónustu hjá viðkomandi fyrirtæki.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Vatn tekið af í skamma stund í Hvömmum”
15.11.2024

Vatn tekið af í skamma stund í Hvömmum

Við vekjum athygli á því að vatnið verður tekið af í skamma stund í Brekkuhvammi, Bakkahvammi, Lækjarhvammi og Stekkjarhvammi vegna viðgerðar á vatnsveitu.   – Sett inn kl.17:58
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Möguleiki á truflun vatnsrennslis vegna viðgerða”
15.11.2024

Möguleiki á truflun vatnsrennslis vegna viðgerða

Við vekjum athygli á því að truflanir geti orðið á vatnsrennsli í Brekkuhvammi, Bakkahvammi, Lækjarhvammi og Stekkjarhvammi í dag vegna viðgerðar á vatnsveitu. 
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Bókatíðindi mætt í hús”
14.11.2024

Bókatíðindi mætt í hús

Margir bíða spenntir ár hvert og nú er biðin loks á enda, Bókatíðindi 2024 eru komin út. Prenteintök eru mætt á Héraðsbókasafn Dalasýslu og hægt verður að nálgast ókeypis eintak á opnunartíma safnsins. Opnunartími bókasafnsins er sem hér segir: Þriðjudagar kl. 12:30-17:30 Fimmtudagar kl. 12:30-17:30 Það er Félag íslenskra bókaútgefenda sem stendur að útgáfunni. Bókatíðindin geyma samantekt yfir bókaútgáfu ársins
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Yrkjum lífsgæðin í Dölunum”
13.11.2024

Yrkjum lífsgæðin í Dölunum

Mánudaginn 4. nóvember sl. voru haldnar tvær kynningar í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Annars vegar var um að ræða kynningu á verkfærakistu í markaðssetningu, sem sveitarfélagið og fyrirtæki – og í raun allir áhugasamir geta nýtt sér. Verkfærakistan er aðallega hugsuð til að miðla heilstæðri sýn á sveitarfélagið út á við, þar sem slagorðið er „Við yrkjum lífsgæði í Dölunum“. Ingvar
Skoða betur
Fréttir.