Aðalskipulag Dalabyggðar 2004-2016

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 14. mars að auglýsa skipulags- og matslýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004 – 2016, samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin er eftirfarandi:

 

Vindorkugarður við Hróðnýjarstaði

Með skipulags- og matslýsingu þessari er íbúum og öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir sem snúa að málefnum aðalskipulagsins..

 

Ákveðið hefur verið að framlengja athugasemdafrest sem upphaflega átti að vera frá 11. apríl til 24. maí. Framlengdur athugasemdafrestur verður til 18. júní.

 

Lýsingin liggur frammi á skrifstofu Dalabyggðar Miðbraut 11, 370 Búðardal og á heimasíðu sveitarfélagsins dalir.is.

 

Athugasemdum eða ábendingum skal skila til skrifstofu Skipulagsfulltrúa, að Miðbraut 11 Búðardal eða netfangið skipulag@dalir.is fyrir 18. júní 2019.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei