Aðalskipulag Dalabyggðar 2004-2016

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 10. apríl að auglýsa skipulags- og matslýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004 – 2016, samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Breytingin er eftirfarandi:

 

Vindorkugarður í Sólheimum

Með skipulags- og matslýsingu þessari er íbúum og öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir sem snúa að málefnum aðalskipulagsins.

 

Ákveðið hefur verið að framlengja athugasemdafrest sem upphaflega átti að vera frá 24. apríl til 6. júní. Framlengdur athugasemdafrestur verður til 1. júlí.

 

Lýsingin liggur frammi á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal og á heimasíðu sveitarfélagsins dalir.is.

 

Athugasemdum eða ábendingum skal skila til skrifstofu skipulagsfulltrúa, Miðbraut 11, Búðardal eða á netfangið skipulag@dalir.isfyrir 1. júlí 2019.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei