Akstur úr Búðardal í Borgarnes (leið 65) – haustönn 2024

DalabyggðFréttir

Áfram heldur tilraunaverkefni vegna aksturs milli Búðardals og Borgarness þar sem megin áhersla er að bjóða framhaldskólanemum í Dalabyggð skólaakstur úr Búðardal í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Í samræmi við þá stöðu að flestir nemendur úr Dalabyggð hyggjast dvelja í Borgarnesi alla vinnuvikuna þá verða nú breytingar á leiðinni sem kallast „leið 65“ í leiðarkerfi Strætó. Nú á haustönn mun leið 65 aðeins aka á mánudagsmorgnum úr Búðardal en hægt er að nýta leið 59 á föstudögum til að komast í Búðardal. Ferðirnar eru öllum opnar en hafa þarf sérstaklega samband við skrifstofu Auðarskóla ef nýta á ferð (að undanskilinni fyrstu ferð þetta skólaárið sem fer þann 26. ágúst frá Auðarskóla á umræddum tíma).

Áætlun gerir ráð fyrir ferð til og frá Borgarnesi á mánudögum eða sem hér segir:

Leið 65
Mánudagar
Búðardalur – Borgarnes kl. 08:30
Borgarnes – Búðardalur kl. 09:45
Föstudagar
Við bendum á að hægt er að komast frá Borgarnesi í Búðardal á föstudögum með því að notast við leið 59 hjá Strætó.
Brottför kl. 16:58 frá N1 Borgarnesi.
Stoppistöð leiðar 65 í Búðardal er við Auðarskóla að Miðbraut 10.
Stoppistöð leiðar 65 í Borgarnesi er við Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 54.
Stoppistöð leiðar 59 í Borgarnesi er hjá N1 en í Búðardal við Krambúðina, Vesturbraut 20.

Brottfarartími úr Búðardal var ákveðinn með tilliti til komu skólabíla úr dreifbýli Dalabyggðar að Auðarskóla. Leiðin er opin öllum sem geta nýtt sér ferðirnar og tilkynna fyrirhugaða notkun. Tilgreindur tími er brottför bílsins frá stoppistöð, til að reikna komutíma á áfangastað má bæta við ca. 1 klst og 10 mínútum. Þannig er ferð sem fer úr Búðardal kl. 08:30 á mánudagsmorgni að lenda í Borgarnesi um kl. 09:40.

Fyrsta ferð haustannar verður farin mánudaginn 26. ágúst 2024 og fer hún frá Auðarskóla kl.08:30

Með ofangreindum ferðum er verið að gera framhaldsskólanemum sem vilja nýta bílinn kleift að komast til og frá skóla á mánudögum og þeir geta þá nýtt sér leið 59 á föstudögum. Tilraunaverkefnið er unnið í samstarfi við Menntaskóla Borgarfjarðar svo þeim er kunnugt um hvenær nemendur eru að mæta í skólann og eins hvenær þeir þurfa að vera komnir út í bíl til að geta nýtt heimferð. Eins getur almenningur hlutast til um að fá far með bílnum á uppgefnum tímum hvort sem það er fyrir íbúa Dalabyggðar að komast í Borgarnes og heim aftur eða gesti að koma í Búðardal.

Dalabyggð niðurgreiðir kostnað framhaldsskólanema á fargjaldi á leið 65 en almenningur og aðrir íbúar Dalabyggðar greiða gjald skv. gjaldskrá Strætó. Gjald fyrir hverja ferð á leið 65 er sem hér segir:

Gjald framhaldsskólanemenda*
1.000 kr.-
Frítt er fyrir 11 ára og yngri
Almennt gjald
3.000 kr.-
12-17 ára (ekki framhaldsskólanemar), eldri borgarar og öryrkjar fá 50% afslátt af almennu gjaldi.

*gjald framhaldsskólanemenda miðar við að viðkomandi sé skráður nemandi í Menntaskóla Borgarfjarðar, óháð aldri.

Þar sem um tilraunaverkefni er að ræða verður fylgst vel með nýtingu akstursins á þessari nýju leið líkt og á síðustu önn. Þannig þarf að hafa sérstaklega samband við skrifstofu Auðarskóla ef nýta á ferð.

Þeir sem vilja nýta sér akstur á mánudegi þurfa að tilkynna það til skrifstofu Auðarskóla eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi föstudaginn á undan (fyrir helgi). Falli áður tilkynnt nýting niður t.d. vegna veikinda þarf að tilkynna það til bílstjóra með SMS (símanúmer aðgengilegt á vef Dalabyggðar) fyrir kl. 08:15 að morgni þess dags sem nýta átti ferð.

Dalabyggð áskilur sér rétt til að fella niður ferð með stuttum fyrirvara ef enginn framhaldsskólanemandi ætlar að nýta ferð þann daginn eða ef metið er að veður og/eða færð hamli akstri.

Leiðin mun aka sem fyrr segir á mánudögum  og miðast við skóladagatal grunnskóla Auðarskóla og Menntaskóla Borgarfjarðar, s.s. hún er ekki ekin í skólafríum og á rauðum dögum. Skóladagatal Menntaskóla Borgarfjarðar má finna á heimasíðu skólans www.menntaborg.is og skóladagatal Auðarskóla á www.audarskoli.is

Allar ofangreindar upplýsingar eru með fyrirvara um frekari þróun í innleiðingu þessa verkefnis. Ef breytingar verða á verkefninu verða þær kynntar á heimasíðu Dalabyggðar og samfélagsmiðlum.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei