Alþingiskosningar – viðmiðunardagur kjörskrár

DalabyggðFréttir

Viðmiðunardagur kjörskrár er klukkan 12 á hádegi 29. október. Viðmunardagur kjörskrár segir til um hvar kjósendur eru skráðir á kjörskrá og þá hvar þeir eiga að kjósa. Ef kjósandi flytur lögheimili sitt eftir þann tíma er hann enn á kjörskrá miðað við fyrra heimilisfang. Tilkynning um nýtt lögheimili þarf að hafa borist Þjóðskrá fyrir klukkan 12 á hádegi 29. október.

Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf hann að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands, fyrir 1. desember 2023. Ef umsækjandi uppfyllir skilyrðin verður hann skráður á kjörskrá til næstu fjögurra ára á eftir. Ef ekki var sótt um fyrir 1. desember síðastliðinn geta þeir sem hafa haft lögheimili erlendis, lengur en 16 ár, ekki kosið í alþingiskosningunum.

Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt við alþingiskosningar og geta því ekki kosið (fyrir utan danska ríkisborgara sem voru búsettir á Íslandi 6. mars 1946 eða einhvern tímann á síðustu 10 árum fyrir þann tíma).

Upplýsingar um kosningar er að finna á heimasíðu landskjörstjórnar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei