Bólusetning gegn árlegri inflúensu

DalabyggðFréttir

Bólusetning gegn árlegri inflúensu er hafin á heilsugæslustöðvunum í Búðardal og á Reykhólum.

 

Bóluefnið inniheldur vörn gegn inflúensu A(H1N1), A(H3N2) og inflúensu B.

 

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:

– Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

– Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

– Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

– Þungaðar konur.

 

Ofangreindum forgangshópum stendur bóluefni til boða sér að kostnaðarlausu en hvort greiða þarf komugjald á heilsugæslustöð fer eftir stöðu hvers og eins í greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands.

 

Bólusetning gegn inflúensu veitir allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum. Jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.  Nánari upplýsingar er að finna á vef landlæknisembættisins.

 

Hægt verður að mæta í bólusetningu án þess að bóka tíma í Búðardal fimmtudaginn 3. og mánudaginn 7. október frá kl. 9-12 og 13-16  og á Reykhólum föstudaginn 4. október frá kl. 11-14.

 

Tímabókanir eru í síma 432 1450 (Búðardalur) eða 432 1460 (Reykhólar).

 

Starfsfólk HVE-Búðardal / Reykhólum.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei