Bólusetning við Influensu og Covid-19

DalabyggðFréttir

Taka má báðar bólusetningarnar samtímis

Inflúensubólusetning er einungis í boði fyrir forgangshópa

Forgangshópar eru:

  • 60 ára og eldri
  • Yngri en 60 ára með undirliggjandi sjúkdóma (hjarta-, lungna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, illkynja sjúkdómar og aðrir ónæmisbælandi sjúkdómar).
  • Heilbrigðisstarfsmenn
  • Þungaðar konur
  • Börn fædd 2020 og yngri sem náð hafa 6 mánaða aldri
Covid-19 bólusetning

Covid-19 bólusetning er í boði fyrir sömu forgangshópa og Inflúensubólusetning en er þó ekki í boði fyrir börn yngri en 5 ára

Minnum fólk sem mætir í bólusetningu á að gott er að mæta í stuttermabol og gera ráð fyrir að bíða í 15 mínútur eftir að bólusetning hefur verið gefin.

Bólusett verður eftirfarandi daga:
  • Föstudagur 13. október í Búðardal
  • Miðvikudagur 18. október á Reykhólum og í Búðardal
  • Föstudagur 27. október í Búðardal

ATH. að panta þarf tíma í bólusetningar í síma 432 1450

Þeir sem ekki komast á uppgefnum dagsetningum vinsamlegast hafið einnig samband við heilsugæsluna.

Starfsfólk HVE Búðardal /Reykhólum

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei