Álagningu fasteignagjalda 2016 er nú lokið. Álagningarseðla fasteignagjalda má nálgast rafrænt (pdf-skjöl) á þjónustusíðu opinberra aðila www.island.is. Íbúar 67 ára og eldri fá þá senda í pósti og einnig þeir sem þess óska sérstaklega.
Aðgangur að Island.is er Íslykill (kennitala og lykilorð útgefið af þjóðskrá) eða rafræn skilríki.
Nánari upplýsingar og aðstoð má fá á skrifstofu Dalabyggðar kl. 10-14, í síma 430 4700 kl. 9-13 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið dalir @dalir.is.
Álagður fasteignaskattur er
a) 0,50% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna.
b) 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis.
c) 1,50% af álagningarstofni allra annarra fasteigna og lóða.
Lóðaleiga
a) íbúðarhúsnæðis er 1,70% af fasteignamati lóðar.
b) atvinnuhúsnæði er 2,00% af fasteignamati lóðar.
Afsláttur ellilífeyrisþega og öryrkja
Elli- og örorkulífeyrisþegar, með lögheimili og búsetu í Dalabyggð, njóta afsláttar af fasteignaskatti og holræsagjaldi sem lagt er á íbúðarhúsnæði í eigu viðkomandi enda hafi hann þar búsetu. Sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 og reglur Dalabyggðar.
Afslátturinn er tekjutengdur (Skattframtal 2015, tekjur 2014).
Við ákvörðun afsláttar skulu notaðar eftirfarandi viðmiðanir:
Einstaklingar
|
Hjón / sambýlisfólk
| ||||
Tekjur kr.
|
Afsláttur
|
Tekjur kr.
|
Afsláttur
| ||
Allt að
|
2.498.000
|
100%
|
Allt að
|
4.122.000
|
100%
|
Allt að
|
2.747.800
|
75%
|
Allt að
|
4.534.000
|
75%
|
Allt að
|
2.997.600
|
50%
|
Allt að
|
4.946.000
|
50%
|
Allt að
|
3.247.400
|
25%
|
Allt að
|
5.359.000
|
25%
|
Innheimta
Fasteignagjöldin verða innheimt með rafrænum greiðsluseðlum sem hægt er að greiða í netbanka. Gjaldendum er bent á þann möguleika að láta viðskiptabanka sinn sjá um beingreiðslur á fasteignagjöldum.
Fjöldi gjalddaga er almennt 6. hvers mánuðar. Fyrsti gjalddaginn er 5. febrúar og sá síðasti 5. júlí. Ef heildargjöld greiðanda eru undir kr. 12.000 þá er einungis einn gjalddagi, 5. apríl. Ef heildargjöld greiðanda eru lægri en 250 kr. eru þau ekki innheimt.
Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur séu öll gjöld greidd í síðasta lagi 15. febrúar.
Nánari upplýsingar um staðgreiðsluafslátt, bankarreikning og innheimtu veitir Ingibjörg Jóhannsdóttir bókari í síma 430 4700 kl. 9-13. Einnig má senda fyrirspurn á netfangið ingibjorgjo@dalir.is.
Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga. Ef fasteignagjöldin eru ennþá ógreidd mánuði eftir eindaga verða þau send í innheimtu.