Verkefnið, Fram á völlinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og kemur í kjölfar verkefnisins Gríptu boltann sem Framleiðnisjóður stóð að.
Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar í sveitum landsins og efla þannig fjölbreytni í atvinnulífi og auka lífsgæði.
Verkefnið nær til landsins alls en framkvæmdin verður á afmörkuðum svæðum hverju sinni. Á haustmisseri 2019 kemur verkefnið til framkvæmdar í Þingeyjarsýslum og í Dölum.