Handverksfólk athugið – Prjónum og saumum meira

DalabyggðFréttir

18. mars, ætlum við að hittast í þriðja sinn. Í fyrsta skiptið mættu 20 stelpur og í annað skiptið 13. Karlkynið er líka velkomið.
Núna mætir hver með það sem hann hefur áhuga á hvað handverk snertir. Það geta verið prjónar, hekl, vattar-saumur, útsaumur o. fl.
Ása kemur og sýnir okkur hvernig á að gimba.
Ef þið eigið í fórum ykkar eitthvað sem þið teljið að aðrir hafi gaman af að skoða þá endilega grípið það með ykkur. Sama er með skemmtilegar og/eða athyglisverðar frásagnir og sögur.
Allir velkomnir, kostar ekkert.
Verðum í handavinnustofunni í Grunnskólanum í Búðardal frá klukkan 20:00 – 22:00 miðvikudaginn 18. mars.
Hlökkum til að sjá ykkur
Hanna Sigga, Áslaug og Linda
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei