Heilsugæsla – september 2019

DalabyggðFréttir

Í september koma á heilsugæslustöðina augnlæknir og háls-, nef og eyrnalæknir. Þá verður boðið upp á krabbameinsleit hjá konum og þjónustu heyrnarfræðinga HTÍ.

 

Háls-, nef og eyrnalæknir

Þórir Bergmundsson, háls-, nef og eyrnalæknir verður með móttöku þriðjudaginn 10. september. Tímapantanir eru í síma 432 1450.

 

Krabbameinsleit hjá konum

Krabbameinsleit hjá konum fer fram í Búðardal þriðjudaginn 17. og miðvikudaginn 18. september. Konum sem hafa fengið bréf frá Leitarstöðinni er boðið að panta tíma. Tímapantanir eru í síma 432 1450.

 

Augnlæknir

Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður með móttöku fimmtudaginn 19. september á Reykhólum og

föstudaginn 20. september í Búðardal. Tímapantanir eru í síma 432 1450.

 

Heyrarfræðingur HTÍ

Móttaka heyrnarfræðings HTÍ verður á heilsugæslustöðinni í Búðardal mánudaginn 16. september og á Hólmavík þriðjudaginn 17. september.

Boðið er uppá heyrnarmælingar, ráðgjöf um heyrnartæki, aðstoð og stillingar. Bókanir eru í síma 581 3855 eða á vefnum hti.is

 

Heilsuvera.is

Íbúar eru hvattir til að skoða vefinn heilsuvera.is en þar er hægt að endurnýja föst lyf, bóka tíma hjá lækni á heilsugæslustöð, senda lækni skilaboð, sjá yfirlit yfir ónæmisaðgerðir, taka ákvörðun um líffæragjöf o.fl. Vefurinn krefst rafrænna skilríkja.

 

Gera þarf ráð fyrir að afgreiðsla lyfja geti tekið allt að 2 virka daga.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei