Íbúð laus til leigu í Búðardal

DalabyggðFréttir

Brák íbúðafélag auglýsir íbúð lausa til leigu í Búðardal.

Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð í raðhús að Bakkahvamm 15c. Um er að ræða 3ja herbergja íbúð um 75m².

Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.

Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.

Umsókn um leigu

Umsókn skal senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is , með upplýsingum um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2025

Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðinni þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei